Sæl verið þið. Ég er búinn að vera heldur upptekinn í dag svo þetta kemur heldur seint.. en hvað um það, það verður ekkert leiðinlegra þótt þetta kemur aðeins seinna en venjulega

Ég sá í vikunni myndband af geitum að öskra eins og menn. Njótið!
Svo smá dass af American funniest home vidios

Margir fóru að hlæja þegar ég keypti bílinn minn, hmm.. ég veit ekki af hverju


Og ein mynd


Þá er komið að bröndurunum!
Njótið í botn, annars verð ég leiður

Mýflugnasprayið
Ferðamaðurinn var að truflast vegna ágangs mýflugna, hann fór inn í næstu búð og bað um mýflugnaspray. “Er þetta gott spray”, spurði hann afgreiðslumanninn þegar hann rétti honum brúsann. “Ekki fyrir flugurnar”, svaraði afgreiðslumaðurinn, “þær drepast.”
Erfitt að vakna
Tómas átti erfitt með að vakna á morgnana og mætti alltaf seint í vinnuna. Yfirmaður hans var orðinn leiður á þessu og endaði með að hóta honum að reka hann ef hann gerði ekki neitt í sínum málum. Tómas fór því og hitt lækni, sem sagði honum að taka eina töflu áður en hann færi að sofa. Tómas gerði þetta og sofnaði eins og ungabarn, um morguninn vaknaði á undan vekjaraklukkunni, hress og kátur. Honum leið ákaflega vel, fékk sér að borða og mætti snemma í vinnuna. Þegar yfirmaður hans mætti, hljóp hann til hans með ánægju bros og tilkynnti að hann hefði fengið þessa fínu töflu hjá lækninum og nú væri málinu reddað, hann hefði vaknað eldsnemma og reyndar mætti í vinnuna áður en hann átti að mæta. „Gott og vel“, sagði yfirmaurinn, „en hvar í fjandaum varstu í gær“
Smá gáta fyrir vini þína
Spurning: Hver var seinastur að lemja Michel Jackson?
Svar: Útfararstjórinn
Jæja, ég vona að ég hafi skemmti ykkur eitthvað

- Hafsteinn
FribbiB