Föstudagsrugl - 4

Allt sem er ekki tengt Minecraft vinsamlegast setjið það hér
Post Reply
Hafsteinnd
Posts: 1337
Joined: August 7th, 2012, 10:03 pm

Föstudagsrugl - 4

Post by Hafsteinnd »

Föstudagsrugl - 4

Sæl verið þið. Ég er búinn að vera heldur upptekinn í dag svo þetta kemur heldur seint.. en hvað um það, það verður ekkert leiðinlegra þótt þetta kemur aðeins seinna en venjulega :D

Ég sá í vikunni myndband af geitum að öskra eins og menn. Njótið!


Svo smá dass af American funniest home vidios :D


Margir fóru að hlæja þegar ég keypti bílinn minn, hmm.. ég veit ekki af hverju :(
Image
Og ein mynd :P
Image

Þá er komið að bröndurunum!
Njótið í botn, annars verð ég leiður :)

Mýflugnasprayið
Ferðamaðurinn var að truflast vegna ágangs mýflugna, hann fór inn í næstu búð og bað um mýflugnaspray. “Er þetta gott spray”, spurði hann afgreiðslumanninn þegar hann rétti honum brúsann. “Ekki fyrir flugurnar”, svaraði afgreiðslumaðurinn, “þær drepast.”

Erfitt að vakna
Tómas átti erfitt með að vakna á morgnana og mætti alltaf seint í vinnuna. Yfirmaður hans var orðinn leiður á þessu og endaði með að hóta honum að reka hann ef hann gerði ekki neitt í sínum málum. Tómas fór því og hitt lækni, sem sagði honum að taka eina töflu áður en hann færi að sofa. Tómas gerði þetta og sofnaði eins og ungabarn, um morguninn vaknaði á undan vekjaraklukkunni, hress og kátur. Honum leið ákaflega vel, fékk sér að borða og mætti snemma í vinnuna. Þegar yfirmaður hans mætti, hljóp hann til hans með ánægju bros og tilkynnti að hann hefði fengið þessa fínu töflu hjá lækninum og nú væri málinu reddað, hann hefði vaknað eldsnemma og reyndar mætti í vinnuna áður en hann átti að mæta. „Gott og vel“, sagði yfirmaurinn, „en hvar í fjandaum varstu í gær“

Smá gáta fyrir vini þína
Spurning: Hver var seinastur að lemja Michel Jackson?
Svar: Útfararstjórinn

Jæja, ég vona að ég hafi skemmti ykkur eitthvað :) Hafið það gott!
- Hafsteinn

FribbiB
Last edited by Hafsteinnd on March 16th, 2013, 8:50 am, edited 1 time in total.
FribbiB
Posts: 206
Joined: January 9th, 2013, 6:53 pm
Location: Eagle's nest

Re: Föstudagsrugl - 4

Post by FribbiB »

https://www.youtube.com/watch?v=j2ghVpNCVe4

Þetta hér er líka fáranlega fyndið! :D
Hafsteinnd
Posts: 1337
Joined: August 7th, 2012, 10:03 pm

Re: Föstudagsrugl - 4

Post by Hafsteinnd »

FribbiB wrote:https://www.youtube.com/watch?v=j2ghVpNCVe4

Þetta hér er líka fáranlega fyndið! :D
Hahaha..
User avatar
IcelandGold
Posts: 733
Joined: November 4th, 2012, 8:20 pm
Location: Eggilsstöðum sími: 8971265 Call me

Re: Föstudagsrugl - 4

Post by IcelandGold »

FribbiB wrote:https://www.youtube.com/watch?v=j2ghVpNCVe4

Þetta hér er líka fáranlega fyndið! :D
WTF
Mess with the best, Die like the rest
vidvid8 wrote:lol eg atti ekki heima i london eda einland
Post Reply