Þið getið sjálf fundið einhverjar skemmtilegar Commercial auglýsingar en þær eru alla vega mjög fyndnar..
Snúum okkur að bröndurum
![Smile :)](./images/smilies/icon_e_smile.gif)
Brandarar
Hlátur lengir lífið!
Börnin læra það sem fyrir þeim er haft
Tarzan býr hálf nakinn uppi í tré, Öskubuska er að druslast heim um miðnætti, Gosi er síljúgandi, Aladdin er konungur þjófanna, Batman keyrir um á 320 km hraða, Þyrnirós er hundlöt, og Mjallhvít býr með 7 dvergvöxnum karlmönnum. Svo erum við hissa þegar börnin hegða sér illa!
Sjálfsalinn og barnið
Maður að reyna fá forræði yfir barni sínu og hélt því mjög fast fram að hann ætti barnið en ekki konan, svo þegar dómarinn bað hann um að færa rök fyrir því, þá sagði hann: “Herra dómari ef þú setur 100 kall í kóksjálfsala og það kemur dós út… Hver á dósina… þú eða sjálfsalinn?”
Að jarða hamstur
Gunnar sá son nágrannans vera að moka í holu um daginn og spurði drenginn í hvers konar framkvæmdum hann stæði í. Drengurinn svaraði með ekka: „Ég er að jarða hamsturinn minn.“ Gunnar er raunsær maður og spurði því: „Er þetta ekki nokkuð stór gröf fyrir einn hamstur?“ Um leið og drengurinn mokaði síðustu moldinni yfir svaraði hann: „Nei alls ekki, hamsturinn er innan í kettinum þínum.
Tryggingar
Maður gengur inn í Sjóvá, afgreiðslukonan segir: "Hvernig get ég afgreitt þig?" Maðurinn svarar: "Jú, mig vantar tryggingar." Afgreiðslukonan svarar: "Hvað þarftu að tryggja?" Maðurinn ætlar að vera gáfaður og segir: "Ég ætla að tryggja mér sigur."
Jæja, annað föstudagsruglið á enda.. endilega bæta á ruglið í postreply.
Takk fyrir mig!