Baldur wrote:Takk allir

Sko... ég fór á minecraft.is og prófaði að slá inn slatta af þessum serverum þar. Þegar ég geri bæta við þjóni og slæ inn upplýsingarnar þá vinnur tölvan í smástund og svo birtist bara rautt x og talan 1.6.2 sem ég skil þá sem svo að ég hafi ekki komist inn? Get alla vega ekkert gert. Það er ekki í boði að ýta á tengjast þjóni takkann, bara tengjast beint takkann og ef ég geri það og slæ inn einhverjum server þar kemur bara "þjónninn sleit sambandinu"
Það er ekkert að netinu hjá mér en ég keypti ekki leikinn löglega heldur tók á deildu.is minnir mig. Samt held ég að ég sé að ná í update-in og allt af mojang.com. Þannig að ég skil ekki að han muni virka eitthvað öðruvísi ef ég kaupi hann, eins og einhver sagði. En ef það er málið geri ég það, nó probs, bara óþarfi ef það er svo ekki málið
Er einhver sem skildi þetta og getur hjálpað smá meir

Sæl.
Rautt X þýðir að þú getir ekki tengst viðkomandi vefþjóni. Eins og ég skil þetta þá held ég að þú sért með útrunna útfgáfu af leiknum. Þegar þú opnar leikinn á að standa hvaða útgáfa þú ert að nota neðst í vinstra horninu, ef hún er ekki 1.6.2 getur þú ekki tengst neinum vefþjóni sem notast við þá útgáfu. Ef maður er að nota útrunna útgáfu þá á að birtast valmöguleiki um að uppdate'a um leið og þú opnar leikinn, átt ekki að þurfa að ná í þau af netinu
Baldur wrote:ókei takkz

, svo ef ég eyði honum bara hjá mér og kaupi leikinn af mojang.com þá get ég (eða synir mínir reyndar) bæði spilað á netinu og náð í nýjustu update-in?

Ég keypti leikinn á minecraft.net, hef ekki kynnt mér mojang.com nægilega vel til að vita hvort það sé hægt að næla sér í hann þar. Ef þú kaupir leikinn þá færðu allar uppfærslur um leið og þær koma

Þar á meðal hesta

Plús, getur spilað á netinu.
Ef þú lendir í einhverju klandri, þá ekki hika við að spurja hérna. Það eru allir til í að hjálpa þér eins og þú kannski ert búin að kynnast
