Föstuagsrugl - 5

Allt sem er ekki tengt Minecraft vinsamlegast setjið það hér
Post Reply
Hafsteinnd
Posts: 1337
Joined: August 7th, 2012, 10:03 pm

Föstuagsrugl - 5

Post by Hafsteinnd »

Föstudagsrugl - 5

Vó. Páskar eftir tæpa viku, flestir komnir í páskafrí og auðvitað í stuði! Föstudagsrugl mun fara í páskafrí eins og allir hinir og mun það standa yfir í Þrjár vikur, ég verð heldur ekki við, mun verða erlendis. En hvað um það :D Byrjum síðasta föstudagsruglið fyrir páska!

Eftir að ég keypti bílinn minn hef ég ekki getað startað honum, einhver sem getur hjálpað mér :?:
Image
Ahh.. fann það út, þarf enga hjálp. En þegar ég fór til útlanda viltist ég, svo ég hringdi í neyðarnúmer landsins..
Image

Við þurfum að bragðbæta þetta rugl með funniest home vidios :D

Og slatti af Just For Laughs


Brandarar

Bandbrjálaði veiðimaðurinn
Tveir veiðimenn eru á veiðum í skógi þegar annar fellur niður og virðist hætta að anda. Félagi hans grípur farsímann og hringir í neyðarlínuna. "Félagi minn er dauður. Hvað á ég að gera?" æpir hann í símann. Viðmælandinn biður hann að róa sig niður. "Gakktu fyrst úr skugga um að hann sé örugglega látinn. Þá kemur þögn og svo skothvellur. "Og hvað svo," segir maðurinn svo í símann."

Ljóskan
Ljóskan gekk framhjá ljósastaur og sá miða á honum, sem auglýsti íbúð til
leigu. Ljóskan bankaði á staurinn. Önnur ljóska kom og spurði af
hverju hún væri að banka á staurinn. Hin svaraði: "Hér er verið auglýsa íbúð 
til leigu en engin svarar." Þá sagði hin: " Enn skrítið...það er ljós uppi"

Duglegi heimilisfaðirinn
Maður nokkur var ekki nægilega duglegur í húsverkunum svo konan sagði við hann: "Þú þarft nú að taka þig á í heimilisstörfunum, ég á ekki að þurfa að standa í þessu ein." Svo karlinn ákvað að taka sig á. Næsta dag ætlaði hann að vera rosalega duglegur og setja í þvottavélina, hann var varla búinn að vera 5 mínútur inn í þvottahúsi þegar konan heyrir hann kalla: "Á hvað stilli ég þvottavélina elskan?" Þá svaraði konan hans: "Það fer eftir því sem stendur á flíkinni." Þá svaraði maðurinn: "Ha? Húsasmiðjan?"

Jæjæjæjæjaaaa.. ekki meira að sinni, ég nenni ekki meira :P
Image

Takk fyrir mig, ég kveð ykkur að sinni og gleðilega páska!
-Hafsteinn
Last edited by Hafsteinnd on April 12th, 2013, 3:43 pm, edited 2 times in total.
Tjorvi
Posts: 769
Joined: October 26th, 2012, 8:24 pm
Location: Veit ekki? Er týndur!

Re: Föstuagsrugl - 5

Post by Tjorvi »

Flottur.
HarriOrri wrote:Ég joinaði, spurði hvort serverinn væri hýstur á kartöflu eða hvað útaf laggi og var svo permabanned. lol
Post Reply