Sko ég er búinn að vera að skoða þennan server lengi en aldrei spilað á honum og langar að vita um hvað hann snýst.
Getur einhver lýst þessum server fyrir mig??
Ég myndi halda að besta leiðin til að lísa þessum server er að hann er mjög líkur single player nema margir notendur. Maður þarf að grafa eftir hlutunum sínum og þarf að verja sig frá mobs og og playerum sem sitja stundum um mann og reyna að ná dótinu manns.
Ekkert er gefins og það er engin sjoppa, mesta lagi að notendur skipti sín á milli.
Þetta er semsagt survivor server ekki builder server og gert ráð fyrir að allir notendur séu með óbreyttan client og geti þar af leiðandi ekki fly eða annað sem gerir það að verkum að maður sé betur settur en aðrir notendur.