Page 1 of 4
Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 5:41 pm
by eagles
Sæl og afsakið hálfvitalega spurningu,
litli drengurinn minn er kominn með töluverða hæfni í Minecraft. Honum langar að tengjast íslenskum server. Hvernig fer ég að því.
Fyrirfram þökk
Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:00 pm
by oliver_Builder
Hvernig skal finna íslenska minecraft servera:
Hann þarf á
minecraft.is til að finna íslenska servera, þar eru bara íslenskir serverar.
Svo er ég að fara að gefa út íslenskan server, hann opnar 25.apríl. IP:
o.minecraft.is Það verður góður byggingar server, kanski hentar það honum? Serverinn mun tala meiri íslensku en aðrir serverar, þannig að það hlýtur að henta honum
Ef hann er nýr í minecraft og kann ekki neitt, lestu þá þetta:
Hæ, ferð í minecraft og ferð í multiplayer (netspilun á íslensku), til að adda server (til að sitja inn á server listann sinn, til að geta bara smellt strax á hann) smelliru á "add server" (sem er "bæta við þjóni" á íslensku) og skrifar uppi hvað
hann vill kalla serverinn, svo fyrir neðan situru inn
IP address á servernum (getur séð IP á serverum á
minecraft.is). Svo smelliru bara á done og þá geturu smellt á serverinn sem hann vill joina, svo save-ast allir serverarnir sem þú addar inn á minecraft þannig að í hvert einasta skiptið sem þú ferð í minecraft og ferð í multiplayer koma serverar sem þú hefur addað, svo ætti restin að vera augljós

Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:14 pm
by eagles
Þúsund þakkir fyrir hafa að gefið þér tíma til að svara þessu...ert að kæta lítinn strák mikið.
Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:17 pm
by eagles
Nei fæ reyndar unresolved host name.
Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:17 pm
by oliver_Builder
eagles wrote:Þúsund þakkir fyrir hafa að gefið þér tíma til að svara þessu...ert að kæta lítinn strák mikið.
Ekkert mál
Það er alltaf gaman að hjálpa fólki :p
Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:18 pm
by oliver_Builder
eagles wrote:Nei fæ reyndar unresolved host name.
Þá getur serverinn verið offline, prófaðu server sem er online

Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:20 pm
by eagles
ok...er eitthvað að þessum íslensku online eða bara einhver úti sem er alltaf opinn?
Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:22 pm
by oliver_Builder
eagles wrote:ok...er eitthvað að þessum íslensku online eða bara einhver úti sem er alltaf opinn?
Ef það stendur ekki "[
offline]" og ekki að hann sé lokaður, þá ætti hann að vera opinn, t.d cc.minecraft.is er alltaf opinn (allan sólarhringinn)
Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 6:37 pm
by oliver_Builder
Svo ef þú ert í vandræðum með eitthvað, ekki hika við að spurja á forum, ég og fleiri á forum erum tilbúin til að svara þér

Re: Hjálp
Posted: April 15th, 2015, 9:31 pm
by Spordx
eagles wrote:ok...er eitthvað að þessum íslensku online eða bara einhver úti sem er alltaf opinn?
Sæll eagles.
cc.minecraft.is er survival pvp server sem er opinn allan sólarhringinn. Á CC eru admins sem gera sitt besta í því að halda honum hreinum gegn svindlurum og halda öllu gangandi.
Ef strákurinn þinn er í vændræðum með eitthvað á cc, þá getur hann alltaf gert /helpop og fengið hjálp frá Admin sem er online.
Með bestu kveðju, Alli