Það gengur ekki að slökkva bara á firewall í tölvunni, ef þú vilt slökkva á firewall þarftu að gera það í routernum, en því mæli ég alls ekki með. Að opna 'port' eða 'gátt' er að opna "holu" í firewallinn og leyfa öllum að tengjast í gegnum þessa holu .. eða .. gátt.
Það er ekki mjög flókið að opna port, en reynir útskýrði það nokkuð vel með sínum pósti ef að þú ert með sama router og hann.

Til þess að komast inn á routerinn skaltu setja þetta í vafra (e. browser) eins og þú sért að fara inn á heimasíðu: 192.168.1.254 , ef að það virkar ekki prufaðu þá 192.168.1.1 ,annaðhvort ætti að virka. Þegar þú færð username/password þá er það líklega user:admin og password:admin.
Þú þarft að finna application sharing, eða application & games, eitthvað álíka. Búa til nýja færslu, kalla hana bara Minecraft.
Þessa færslu þarf að 'senda' á tölvuna sem á að hýsa serverinn, líklega tölvuna sem að sonur þinn er að spila á, og til að finna innri IP töluna á þeirri tölvu skaltu fara í START takkann, eða windows takkann og skrifa þar "cmd" án gæsalappanna, ef þú ert á windows Vista eða Windows 7. í Windows XP þarf að smella á Run... áður en að þú slærð inn cmd. Veit ekki hvernig þetta er á mac. Þegar þú ert komin með CMD eða command prompt þá skaltu slá inn "ipconfig" og finna línu sem stendur í IPv4 Address (sjá mynd að neðan). og IPv4 addressan er IP talan á tölvunni sem þarf að slá inn í færsluna.
Svo seturu í port 25565, eða ef þú færð port range, þá er það bara 25565 í báða reiti, og þótt að minecraft noti bara TCP, þá er líklega best að velja bæði, það ætti að vera reitur sem þú getur valið UDP eða TCP og þriðji valkosturinn ætti að vera Both eða eitthvað svoleiðis.
Ef að það kemur einhver reitur sem stendur við "translate to" þá skaltu bara hafa hann auðann.
Vona að þetta sé skiljanlegt :s
Mynd:
Ef að þú vilt ekki/kannt ekki/nennir ekki að opna port þá er hægt að nota VPN, eða Virtual Private Network. Ég held að það séu tvö forrit sem eru aðallega notuð í þetta, annað er Tunngle og hitt er Hamachi.
Báðir/allir aðilar þurfa að vera með þessi forrit ef ekki er opnað port (s.s vinurinn líka).
Hamachi:
Þegar þú ert búin að ná í hamachi þarf að kveikja á því og búa til grúppu, eða rás. Ef að það segir sig ekki sjálft hvernig á að gera það þá geturu fylgt
þessu.
Þá þarf vinurinn að opna sitt hamachi og koma inn í ykkar network, eða grúppu. Hann þarf að vita lykilorðið og nafnið á grúppunni til þess.
þegar báðir aðilar eru komnir í grúppuna þá ætti vinurinn að geta komið inn á serverinn með IP tölunni sem að sést í hamachi hjá ykkur. Hún byrjar líklega á "5." eitthvað. Dæmi: 5.24.235.15
Tunngle:
Þarf að búa til aðgang á Tunngle siðunni (Googla bara Tunngle.) og ná í Tunngle þar. Installa tunngle (Þarf að re-starta tölvunni til þess, Tunngle segir þér hvenær það þarf.) Vinurinn þarf að gera þetta líka.
Þegar það er komið, þá skal opna Tunngle og logga sig inn neðst í Tunngle glugganum.
Þá þurfa báðir aðilar að fara í sama 'room' eða network (Sjá mynd, merkt 1) í leitargluggann skal slá inn T.d "predator" og þá ættu að koma nokkrar grúppur sem heita "Alien vs. Predator" eitthvað. Þú reynir að finna eitthvað sem eru EKKI margir í, því að allir í grúppunni geta tengst servernum. (Þessvegna skaltu alls ekki fara í grúppu sem heitir Minecraft, því að þar eru fullt af fólki að leita sér af einhverjum sem er með server og vill líklega koma og skemma

)
Báðir þurfa að fara í þá grúppu sem þú velur (s.s sonur þinn og vinurinn).
Þegar þú ert komin í grúppu (tvísmellir á grúppu til að fara í hana) þá ætti að vera komin IP tala sem byrjar á 7. neðst í vinstra horninu (Sjá mynd, merkt 3)
Sá sem er með serverinn (þú) þarft að segja hinum (vininum) IP töluna, og ef að báðir eru í grúppunni þá ætti vinurinn að geta tengst með þessari IP tölu.
Ef ekki, þá þarf að gá hvort að kallinn sé ekki grænn. (Merkt 2 á myndinni).
ef hann er það ekki þá þarf bara að googla það vandamál :s.
Mynd:
Gangi þér vel.