Page 1 of 1

Fyrir gestina

Posted: October 7th, 2013, 9:57 pm
by Hafsteinnd
Til þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref á Kubbaveröldinni. Það hafa komið ótal margir gestir núna að undanförnu svo ég vil bara ítreka að þessi server er til að þjálfa byggingarfærni íslenskra minecraft spilara, allar skemmdir eru skoðaðar og viðkomandi hent útaf og settur í stöðuna gestur. Lesið reglurnar og skoðið ykkur um og talið svo við Admin og hann setur þig í Smið. Þá getur þú byrjað að byggja og hafa gaman, eftir því sem þú verður betri færðu hærri stöðu á servernum. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða eitthvað fer á mis á servernum þá ekki hika við að láta okkur vita.
-Hafið gaman á Kubbaveröld!