Page 1 of 5

Jæja þá er komið að því

Posted: September 10th, 2013, 11:55 pm
by LeprOus
Þann 20 september hef ég ákveðið að loka sandkassanum eftir að hafa hýst hann í ca 1 ár.
Mun setja mappið up for download ef eh hefur áhuga á því í eina viku eftir að ég loka honum.

Kv Lepro

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 12:05 am
by Swanmark
Jæja, þetta var gaman :D Eftir 2 ár á Gussi.is, og 1 ár á Sandkassinn.is þá lokar Sandkassinn, og öll möppin eru til hérna ef þið viljið sækja þau, ekkert er glatað. :)

Ég vil ég þakka öllum sem komu nálægt servernum, þið skilgreinduð Sandkassann, það voru þið sem byggðu epísk mannvirki, þetta var ykkar verk. Við áttum okkar góðu og slæmu daga, ég vona bara að þið eigið einhverjar góðar minningar héðan. :)

Sérstakar þakkir til þeirra sem nenntu að sinna admin/moderator starfinu, sem var ólaunað, erfitt og án fríðinda. Við vorum kannski ekki fullkomnir í öllu sem við gerðum, en við reyndum okkar besta, ég vona allavega að flestir séu sáttir. Ég er nokkuð viss um að ég hafi eyðilagt minecraft fyrir einhverjum stjórnendum, leikurinn fór frá skemmtun yfir í skyldu, hann snérist allt í einu kringum það að kljást við oft frekar leiðinlega hluti í stað þess að slappa af og spila, þannig sorry með það :3

Og til skemmdarvargana, takk fyrir að spila, en samt meh :P Flestir ykkar voru bara að stelast í dót sem þið hélduð að enginn myndi sakna, eða sumir einfaldlega vissu ekki betur, það er svosum hægt að fyrirgefa það. En til hinna sem voru markvisst að skemma fyrir öðrum og með leiðindi, meh á ykkur. Enginn ykkar komst upp með skemmdir, það sem var ykkur öllum að falli er að við vissum miklu meira um ykkur heldur en þið gerðuð ykkur grein fyrir. :D Ef þú skemmdir eitthvað og varst ekki bannaður, þá var það útaf því við ákváðum að banna þig ekki :)

Mbk, Gussi, Swanmark og LeprOus.

p.s. Takk fyrir THE END póstinn ;)

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 12:11 am
by LeprOus
like mátt meirað segja taka við fyrr...

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 9:01 am
by FribbiB
Jæja, þetta voru skemmtilegir tímar sem að ég eyddi á Sandkassanum. Þakka kærlega fyrir þessar skemmtilegu stundir :)

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 9:57 am
by SaevarBreki
Takk kærlega fyrir mig, þetta voru skemmtilegir tímar og vona að ég hafi ekki verið til of mikillar vandræða! Veit hins vegar ekki hvaða servera skal spila núna allir góðu eru að hætta... Er minecraft server spilun að hætta?! Kannski tími til að halda áfram og gera eitthvað annað! I don't know


Takk fyrir mig

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 1:40 pm
by Skjaldbaka
Well ...

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 1:56 pm
by Hafsteinnd
Þakka alveg innilega fyrir mig. Þetta er búið að vera einstakur tími. Fannst mjög gaman að geta orðið ykkur að liði :)
-Hafsteinn

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 2:58 pm
by bjorgvine92
Wtf allir bunir ad missa ahuga a mc afh geturu ekki hostad hann tho ad thu spilar ekki mc? Thetta var eini godi serverin

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 3:00 pm
by Nidir
RIP :P

Re: Jæja þá er komið að því

Posted: September 11th, 2013, 3:03 pm
by bjorgvine92
Og by the way ma eg copy'a oll plugin og gera eftir likingu?