Page 1 of 2

Föstudagsrugl - 1

Posted: February 8th, 2013, 1:38 pm
by Hafsteinnd
Jæja, fyrsta föstudagsruglið mitt ;). En fyrir þá sem hafa ekki séð þennan þráð skulu tékka á honum. En ég ætla alltaf að hafa svona föstudagsrugl á hverjum föstudegi svona til afþreyingar. Megið endilega koma með hugmyndir um eitthvað sem ég get sett hérna inn.

Hérna eru tvö skemmtileg myndbönd sem kemur manni í gott skap fyrir framhaldið..
http://www.youtube.com/watch?v=9xH0xorgUoI

Og hérna er svo bráðfyndin hópur í Bandaríkjunum, ég er viss um að einhverjir hlæja..
http://www.youtube.com/watch?v=7cdkqJN2rxI

Það er líka mjög skemmtilegt að kíkja á 9gag.com, hún er alltaf með skemmtilega hluti handa manni að skoða. Það er til margt skemmtilegt í tölvuni.. eins og til dæmis brandarar. Bara að passa sig að fara ekki inn á ninegag.com ;).

Ólympíu brandari
Þá eru úrslitin í siglingakeppninni á ÓL komin í hús.
Bretar tóku gullið, Ástralir silfrið og Sómalir tóku bátinn………………

Bílastæðið
Jón var niðri í bæ og gekk illa að finna bílastæði. Jón var trúaður og leit til himins og sagði: “Góði Guð, hjálpaðu mér núna. Ef þú finnur fyrir mig bílastæði skal ég fara í messu á hverjum sunnudegi það sem eftir er, ég skal hætta að drekka.”
Skyndilega, eins og fyrir kraftaverk, birtist bílastæði beint fyrir framan Jón. Hann lítur til himins og segir: “gleymdu þessu. Fann stæði!”

Háfleygi listmálarinn
Lísa fer á málverkarsýningu í fyrsta skipti og er að skoða málverkin. Fyrsta málverkið sem hún sér er svartur bakgrunnur með gulum slettum hér og þar. Það næsta er dökkgrátt með fjólubláum slettum hér og þar. Hún gengur að málaranum og segir: “Ég skil ekki málverkin þín!” “Listaverkin mín koma innan frá,” útskýrir málarinn háfleygur. “Hefurðu prófað magasýrutöflur?”

Jæja, nóg í bili. Takk fyrir mig og ég vona að þið hafið notið :).

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 8th, 2013, 2:43 pm
by IcelandGold
Jón var niðri í bæ og gekk illa að finna bílastæði. Jón var trúaður og leit til himins og sagði: “Góði Guð, hjálpaðu mér núna. Ef þú finnur fyrir mig bílastæði skal ég fara í messu á hverjum sunnudegi það sem eftir er, ég skal hætta að drekka.”
Skyndilega, eins og fyrir kraftaverk, birtist bílastæði beint fyrir framan Jón. Hann lítur til himins og segir: “gleymdu þessu. Fann stæði

Hahaha

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 8th, 2013, 8:40 pm
by leFluffed
IcelandGold wrote:Jón var niðri í bæ og gekk illa að finna bílastæði. Jón var trúaður og leit til himins og sagði: “Góði Guð, hjálpaðu mér núna. Ef þú finnur fyrir mig bílastæði skal ég fara í messu á hverjum sunnudegi það sem eftir er, ég skal hætta að drekka.”
Skyndilega, eins og fyrir kraftaverk, birtist bílastæði beint fyrir framan Jón. Hann lítur til himins og segir: “gleymdu þessu. Fann stæði

Hahaha
LIKE.

(wheres the like button?)

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 8th, 2013, 10:22 pm
by hr_iceland
Soldið að herma eftir mér en ókei.......

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 9th, 2013, 12:02 am
by Hafsteinnd
hr_iceland wrote:Soldið að herma eftir mér en ókei.......
Nei.. herma eftir þér? Wut, hverju var ég að herma eftir?

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 9th, 2013, 12:04 am
by leFluffed
hr_iceland wrote:Soldið að herma eftir mér en ókei.......
Monthani

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 10th, 2013, 4:29 pm
by hr_iceland
leFluffed wrote:
hr_iceland wrote:Soldið að herma eftir mér en ókei.......
Monthani
Monthani?! ég er ekki að monta mig ég er að segja að hann sé að herma eftir mér

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 10th, 2013, 6:55 pm
by Hafsteinnd
Lestu aðeins betur og reyndu að skilja :P En ég er samt ekkert að herma eftir þér vinur..

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 10th, 2013, 7:24 pm
by Reykjalín
Það var einusinni fjölskylda, Pabbi, mamma, sonur og systir, sonurinn laug svo miikið að pabbinn keypti vélmenni sem lamdi mann ef maður laug... seinna um daginn þegar hann hafði keypt vélmennið prófuðu þau það og pabbinn spurði sonin: hvað gerðiru í dag? Sonur: ég var í fótbolta. Vélmennið lamdi þá sonin og hann sagði þá ókey ókey.... við vorum að horfa á mynd.... pabbi: um hvað var myndin?
Sonur: Amerískan fótbolta... og vélmennið lamdi hann og sonurinn sagði þá, ókey þetta var klámmynd og þá sagði Mamman við pabban: Hann er sko allveg pottþétt sonur þinn og þá sló vélmennið mömmuna.

Re: Föstudagsrugl - 1

Posted: February 11th, 2013, 7:12 pm
by hr_iceland
Hafsteinnd wrote:
hr_iceland wrote:Soldið að herma eftir mér en ókei.......
Nei.. herma eftir þér? Wut, hverju var ég að herma eftir?
Ég byrjaði með Föstudagslagið en svo komst þú í næstu viku með Föstudagsruglið en það er samt okay