Page 1 of 2

Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 13th, 2012, 11:03 pm
by Swanmark
Hér segi ég ekki frá því hvernig maður nær í PEX, en ég skal gefa link.
PermissionsEx

Jæja, þegar þetta er komið inn, skal starta servernum.
Það verður til skrá sem inniheldur öll ranks, en plzlpzplz ekki edita skránna, það kallar bara á vandamál. Við ætlum að gera þetta allt í gegnum commands.

Til að byrja með, þá ætlum við að gera "Owner" group, sem er eigandi þjónsins.

Þá sláum við inn (í console)

pex group Owner create

Þá er grúppan "Owner" til. Næst viljum við að þessi grúppa hafi ÖLL permissions, því þú átt serverinn, og þú vilt geta gert allt, right? :)

pex group owner add "*"

Jæja, þá er grúppan Owner komin með öll permissions. Við viljum hafa lit á grúppunni, right? Við viljum hafa Owner litinn fjólubláann. Þá skrifum við:

pex group owner prefix "&5"

Hérna má finna alla litakóðana.
Þá er Owner grúppan basicly komin.
Ég ætla að taka eina grúppu í viðbót. Þessi grúppa er VIP grúppan.

pex group VIP create

pex group vip add "permission.node.here"

Þetta er einhver permission node, tildæmis ef við viljum gefa VIP aðgang að /give, með Essentials, gerum við svona...

pex group vip add "essentials.give"

Svo er liturinn alveg eins, nema ætlum að hafa hann bláann.

pex group vip prefix "&9"

Jæja, þetta er very basic group setup tutorial...
Ég hef ekki tíma í meira. ^^

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 14th, 2012, 2:16 pm
by Hafsteinnd
Mjög flott :D ætti að hjálpa mjög mörgum :p
Litakóðarnir:

Image

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 14th, 2012, 2:45 pm
by kringar
Fínt gæti kannski hjálpað byrjendum í minecraft, sem eiga server. :)

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 14th, 2012, 3:28 pm
by elvar_333
thanks :D

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 14th, 2012, 5:30 pm
by Swanmark
elvar_333 wrote:thanks :D
Ekkert mál.

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 25th, 2012, 8:26 pm
by HarryByFringman
Flott tutorial hjá þér. Maður skilur allt, bara vel gert. En hvernig lætur maður fólk í ranks? Til dæmis ég og vinur minn erum með server og við myndum báðir vilja vera owner, hvernig læt ég hann í owner rankið?

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 27th, 2012, 3:05 pm
by Hafsteinnd
HarryByFringman wrote:Flott tutorial hjá þér. Maður skilur allt, bara vel gert. En hvernig lætur maður fólk í ranks? Til dæmis ég og vinur minn erum með server og við myndum báðir vilja vera owner, hvernig læt ég hann í owner rankið?
Ég held að maður geti gert það svona í leiknum /pex user [Nafn] group set [Rankið]

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 27th, 2012, 5:47 pm
by Swanmark
HarryByFringman wrote:Flott tutorial hjá þér. Maður skilur allt, bara vel gert. En hvernig lætur maður fólk í ranks? Til dæmis ég og vinur minn erum með server og við myndum báðir vilja vera owner, hvernig læt ég hann í owner rankið?
pex user <nafn> group set <rank>

pex user HarryByFringman group set owner

ef þetta er ingame, þá er / fyrir framan..

/pex user <nafn> group set <rank>

/pex user HarryByFringman group set owner

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 27th, 2012, 6:22 pm
by Hafsteinnd
Þá er það komið á hreint :D en Swanmark, er hægt að hafa rankið [Good] grænt og síðan kemur nafnið og er hægt að setja það í annan lit? ef, hvernig?

Re: Tutorial: Hvernig á að búa til Groups/Ranks með PEX.

Posted: November 28th, 2012, 9:20 pm
by kringar
Það er alveg eins, /pex group good create og svo /pex group Good prefix &2 og svo adda commands...