Svo í dag ætlum við að baka Kókosmuffins As request from GummiA.
- Hitið ofninn í 180C
- þeytið saman sykur og smjör í hrærivél þar til það er orðið létt og ljóst
- sigtið hveiti og setjið til hliðar í skál með lyftidufti og salti
- aðskiljið eggin og geymið
- setjið eggjarauður út í, eina í einu og hrærið vel á milli
- bætið þá þurrefnum og kókosmjólk með vanilludropum til skiptis út í hrærivélaskálina
- stífþeytið eggjahvítur með cream of tartar
- bætið þeim varlega saman við deigið með sleif
- fyllið pappírsmúffuform upp að 3/4 og setjið síðan í múffuformið
- bakið í 20-25 mínútur eða þar til prjónn, sem er stungið er ofan í múffuna, kemur þurr út
jæja gott fólk seigjið hvað þið viljið næst í bökum með Nova fyrir neðan!!!!