Föstudagslagið númer 18 og saga Jóns Sigurðssonar

Allt sem er ekki tengt Minecraft vinsamlegast setjið það hér
Post Reply
hr_iceland
Posts: 470
Joined: December 5th, 2011, 7:24 pm
Location: Í Himnaríkinu
Contact:

Föstudagslagið númer 18 og saga Jóns Sigurðssonar

Post by hr_iceland »

Föstudagslagið er sýnt á þessum degi ekki á föstudeginum með sögu af Jón Sigurðssoni og gleðinlegan þjóðhátíðardag http://www.youtube.com/watch?v=n82uMVlkpws Jón Sigurðsson. Jón Sigurðsson fæddist 17. júní árið 1811 á Hrafnseyri í Arnarfirði á Vestfjörðum. Hann fæddist á Bótolfsvöku (á laugardegi). Hann var skírður í höfuðið á móðurafa sínum, Jóni Ásgeirssyni. Faðir hans var Sigurður Jónsson, prestur og móðir hans Þórdís Jónsdóttir, húsfreyja. Jón átti tvö systkini: Jens og Margréti. Margrét ól manninn á Vestfjörðum og gerðist bóndi á Steinanesi í Arnarfirði. Jens fluttist síðar til Reykjavíkur og gerðist kennari og rektor Lærða skólans. Á uppvaxtarárunum stundaði Jón nám hjá föður sínum.
Jón fluttist til Reykjavíkur átján ára gamall og tók stúdentspróf árið 1829 með ágætiseinkunn. Í Reykjavík vann hann í verslun föðurbróður síns, Einars Jónssonar, og þannig kynntist hann verðandi eiginkonu sinni Ingibjörgu, sem var dóttir Einars. Vorið 1830 réðist Jón til starfa sem biskupsritari hjá Steingrími Jónssyni, biskupi Íslands í Laugarnesi. Steingrímur átti stæðilegt bókasafn og fékk Jón afnot af því. Þar vaknaði áhugi hans á sögu Íslands og menningu.
Jón hélt til Kaupmannahafnar árið 1833 til náms og þar bjó hann til æviloka. Í fyrstu nam hann málfræði en þá fékk hann styrk frá gjafasjóði Árna Magnússonar og sneri sér að lestri íslenskra bókmennta og seinna sögu við Kaupmannahafnarháskóla. Hann lauk þó aldrei prófi. Hann vann sem málvísindamaður hjá Árnasafni. Sem slíkur var hann fenginn til að aðstoða færeyska prestinn Hammershaimb við að gera færeyskt ritmál og réð því að færeysk stafsetning tekur mið af uppruna orða miklu fremur en framburði. Þá var hann aðalmaðurinn á bak við tímaritið Ný félagsrit allan tímann sem það kom út á árunum 1841-73.
Jón var kosinn þingmaður Ísafjarðarsýslu árið 1844 og sótti hann Ísland heim á ný árið 1845 til þess að geta setið á Alþingi. Jón sat sem forseti Alþingis árin 1849-53, einn og hálfan mánuð árið 1857 og loks frá 1867-77. Viðurnefnið forseti fékk hann hins vegar vegna þess að hann var frá 1851 forseti Hafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags. Á tímabilinu sem Jón var þingmaður kom Alþingi saman annað hvert ár og stóð í sex vikur. Jón gat því búið í Kaupmannahöfn en komið heim og sótt þing.
Eiginkona Jóns var Ingibjörg Einarsdóttir, sem sat í festum heima á Íslandi í tólf ár frá 1833 en þau giftust loks þegar hann kom heim á þingið 1845 þann 4. september. Nokkur aldursmunur var á hjónunum, hún var sjö árum eldri. Hjónin voru bræðrabörn en eignuðust engin börn. Þau ólu upp systurson Jóns, Sigurð Jónsson, frá því hann var átta ára. Þau fluttust saman til Kaupmannahafnar og bjuggu lengst á Øster Voldgade 8 (sem núna heitir Øster Voldgade 12 (Jónshús)), en þar voru þau frá árinu 1852 til andláts Jóns 1879. Götuna kölluðu Íslendingar Austurvegg.
Sjálfstæðisbaráttan [breyta]

Frá Danmörku átti Jón í samskiptum við fjölda Íslendinga bréfleiðis. Varðveist hafa yfir 6.000 sendibréf til Jóns frá um 870 bréfriturum. Jón var sérlega iðjusamur og tilbúinn að gera samlöndum sínum ýmsa greiða. Hann var í ágætri stöðu til áhrifa í Kaupmannahöfn og leituðu margir til hans, meðal annars til þess að biðja um lán. Fyrir vikið varð Jón vinsæll meðal Íslendinga.
Einn helsti samstarfsmaður Jóns var nafni hans Jón Guðmundsson, ritstjóri. Hann var stundum kallaður skuggi Jóns Sigurðssonar.
Konungur Danmerkur afsalaði sér einveldi árið 1848 og við það tækifæri ritaði Jón „Hugvekju til Íslendinga“ þar sem hann hvatti Íslendinga til baráttu fyrir sjálfstæði. Greinin birtist í Nýjum félagsritum það ár. Rök hans voru þau að við afnám einveldisins væri Ísland orðið að sjálfstæðu landi, líkt og fyrir Gamla sáttmála. Á þjóðfundinum 1851 lagði hópur Íslendinga fram mótfrumvarp við frumvarp Danakonungs um stjórnskipun Íslands. Jørgen Ditlev Trampe, stiftamtmaður Danakonungs á Íslandi, neitaði frumvarpinu framgöngu og brást þá Jón við og mótmælti framgöngu Trampe. Undir tóku viðstaddir með hinum fleygu orðum „Vér mótmælum allir“. Þessi atburður er talin marka þau tímamót að þaðan af var Jón talinn óumdeildur leiðtogi sjálfstæðisbaráttunnar. Eftir þjóðfundinn ganga sögur um að dönsk yfirvöld vildu ráða Jón af dögum en seinni rannsóknir benda til þess að ekkert sé til í því.[1]
Jón beitti sér fyrir verslunarfrelsi, m.a. með útgáfu ritgerðar um verslun á Íslandi sem kom út árið 1843 þar sem hann vísar í verk Adam Smiths. Þrátt fyrir afnám einokunarverslunar 1787 var verslun við aðra en þegna Danakonungs áfram bönnuð.


Á legsteini Jóns í Hólavallagarði stendur „Stein þenna reistu honum landar hans 1881“.
Jón lést 7. desember 1879 eftir langvinn veikindi. Ingibjörg eiginkona hans lést níu dögum seinna og eru þau bæði grafin í Hólavallagarði.
Minning Jóns
Image
Tjorvi wrote:Er búinn að senda nýa umsögn :D
User avatar
IcelandGold
Posts: 733
Joined: November 4th, 2012, 8:20 pm
Location: Eggilsstöðum sími: 8971265 Call me

Re: Föstudagslagið númer 18 og saga Jóns Sigurðssonar

Post by IcelandGold »

Copy paste?
Mess with the best, Die like the rest
vidvid8 wrote:lol eg atti ekki heima i london eda einland
Tjorvi
Posts: 769
Joined: October 26th, 2012, 8:24 pm
Location: Veit ekki? Er týndur!

Re: Föstudagslagið númer 18 og saga Jóns Sigurðssonar

Post by Tjorvi »

IcelandGold wrote:Copy paste?
Hver er að tala um copy? ;P
HarriOrri wrote:Ég joinaði, spurði hvort serverinn væri hýstur á kartöflu eða hvað útaf laggi og var svo permabanned. lol
Hafsteinnd
Posts: 1337
Joined: August 7th, 2012, 10:03 pm

Re: Föstudagslagið númer 18 og saga Jóns Sigurðssonar

Post by Hafsteinnd »

Hann hefur ekki lesið þetta sjálfur :p
User avatar
IcelandGold
Posts: 733
Joined: November 4th, 2012, 8:20 pm
Location: Eggilsstöðum sími: 8971265 Call me

Re: Föstudagslagið númer 18 og saga Jóns Sigurðssonar

Post by IcelandGold »

:P
Mess with the best, Die like the rest
vidvid8 wrote:lol eg atti ekki heima i london eda einland
Post Reply