TL;DR: Ég afgreiði lénabeiðni á IRC'inu, svo lengi sem réttar upplýsingar fylgja með beiðninni!
Ég býð öllum þeim sem eru með sinn eigin minecraft server að fá undirlén hjá minecraft.is, ókeypis. Eina sem þið þurfið að gera er að skrá ykkur á x.is, og svo tala við mig á irc'inu þar sem tekið er fram hvaða nafn undir .minecraft.is þið viljið, á hvaða IP addressu serverinn hýstur, og hvaða email þið notuðu við skráningu hjá x.is.
Ef ég get tengst servernum þá fer allt í gegn og þið fáið fulla stjórn yfir undirléninu Ef þið eruð að nota hamachi (eða önnur vlan forrit), eftir að forwarda porti, eða vitið ekki hvaða ip/port þið eruð að nota, eða vitið ekkert yfir höfuð hvað þetta er, hvernig þetta virkar, eða hvað þið eigið að gera, þá get ég ekki hjálpað ykkur
Uppfært 07.02.2012
Athugið að lénin gætu dottið út ef þið hættið að hýsa minecraft server á þeim. Einnig verðið þið að setja "enable-query=true" í server.properties ef þið viljið halda léninu, látið mig vita ef þið notið non-default port fyrir serverinn og/eða "query.port".
Uppfært 09.12.2012
Hingað til hef ég gefið öllum undirlén sem þess hafa óskað, en ég hef ákveðið héðan í frá að víkja ekki frá þeirri reglu að ég verð að geta tengst servernum til þess að undirlénið gangi í gegn. Því miður er of stór hluti undirléna fyrir server sem er ekki til, frá einstaklingum sem vita ekkert hvað þeir eru að gera. Þannig til að koma í veg fyrir óþarfa vinnu fyrir mig þá mun ég gera eina tilraun til að tengjast servernum áður en ég bý til undirlén fyrir viðkomandi. Athugið að þið getið ekki sagt mér hvenær ég á að tengjast, þið getið ekki gefið mér einhvern tímaramma eða sagt mér að "prufa núna strax". Verið 100% viss um að serverinn virkar og getur verið uppi 24/7 án vandræða áður en þið sendið mér forum message, ekki láta mig "prufa" serverinn, fáið vini ykkar til að prufa tengjast honum fyrst. Ef ég næ ekki að tengjast servernum þá fáið þið ekki undirlén, og ég mun ekki "prufa aftur" fyrr en einhver tími hefur liðið (lesist: vikur ekki mínútur). Takk fyrir
Uppfært 29.12.2013
Úthlutun undirléna er á ís þangað til þetta er orðið sjálfvirkt. Svona í ljós þess að ég hef úthlutað rétt rúmlega 300 lénum, en bara 10-15 þeirra eru notuð, þá er frekar mikið letjandi að búa til ný manually Þeim sem er full alvara og vilja lén er samt velkomið að finna mig á IRC, ég gæti reddað því á staðnum ef ég er í góðu skapi :p
Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
-
- Posts: 110
- Joined: October 24th, 2011, 5:20 pm
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
Ertu að tala um að búa til server sem verður sýndur hér og maður getur sjálfur verið admin??
Svolítið nýr hér....og hvað er undirlén
Svolítið nýr hér....og hvað er undirlén
Swanmark á heiðurinn af signature
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
Já hann er að tala um það og já mér sýnist helsti tilgangur hjá flestum sem gera server vera sá að verða admin. Undirlén er
undirlen.aðallen.is eða
gussi.minecraft.is þá væri gussi undirlénið.
undirlen.aðallen.is eða
gussi.minecraft.is þá væri gussi undirlénið.
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
Gussi þú ert bestur að lana öllum undirlén(dns) Takk Gussi
Yeyo.minecraft.is
-
- Posts: 110
- Joined: October 24th, 2011, 5:20 pm
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
Gefur ''undirlénið'' einhver forréttindi,minna lagg etc.
I Want To Break Free! -Freddie Mercury
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
Nope, það eina sem undirlénið gerir er að benda á IP addressu. Eini kosturinn er að það er auðveldara að muna *.minecraft.is í stað einhvers crazy léns eða IP addressu
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
er sjéns á að undirlénið manns vísi einnig á server forumið?
t.d http://builder.minecraft.is vísi á http://forum.minecraft.is/viewforum.php?f=19
t.d http://builder.minecraft.is vísi á http://forum.minecraft.is/viewforum.php?f=19
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
það væri hægt með t.d. að setja upp vefserver og láta hann redirecta hingað. en það eru örugglega til fleiri leiðiragust220 wrote:er sjéns á að undirlénið manns vísi einnig á server forumið?
t.d http://builder.minecraft.is vísi á http://forum.minecraft.is/viewforum.php?f=19
Ingame: Ingimarsson
Re: Viltu undirlén hjá minecraft.is fyrir þinn server?
Það er eina færa leiðin. Fyrst að A færslan fyrir undirlénið vísar á þína IP verður þú að seta upp vefserver og láta hann redirecta á forumið. Tæknilega til aðrar leiðir, en þá missiru vísunina á þinn server, sem þú vilt ekkiB.Ingimarsson wrote:það væri hægt með t.d. að setja upp vefserver og láta hann redirecta hingað. en það eru örugglega til fleiri leiðiragust220 wrote:er sjéns á að undirlénið manns vísi einnig á server forumið?
t.d http://builder.minecraft.is vísi á http://forum.minecraft.is/viewforum.php?f=19