Hardcore build server, players þurfa sjálfir að safna materials, ekkert PVP.
Allir gussi.is admins hanga á IRC ef þið þurfið að hafa samband, #minecraft @ irc.lolnet.is. Opnaðu bara á linkinn, veldu nickname, og smelltu á Go! Restin ætti að vera augljós.
Map með staðsetningu allra er hérna.
Reglur
Tvær mjög einfaldar reglur sem við biðjum alla um að fylgja. Þótt þær séu ekki fleiri þá þýðir ekki að allt annað sé leyfilegt, notið almenna skynsemi líka.
- Ekki skemma
- Ekki stela
Economy
Notast er við Fé sem gjaldmiðil, þið fáið 1000 Fé fyrst þegar þið komið á serverinn. Þið getið selt servernum cobblestack á 5 Fé og dirt stack á 4 Fé, þið getið sett upp chest shop og auction ef þið viljið selja (eða kaupa) aðra hluti.
Protection
Notast er við GriefPrevent til að vernda svæði, hver player getur verndað sitt eigið svæði sjálfur án þess að kalla í admin. Tékkið á þessu youtube video fyrir notkun, athugið samt að það er ekki automatic GriefPrevent protection þegar chest er sett niður, þið verðið að nota Golden Shovel, og hún fylgir með /kit tools.
Þið fáið 1024 claim blocks þegar þið komið fyrst á serverinn, sem þýðir að þið getið verndað 32x32 svæði strax, þannig endilega nýta það og ekki gleyma því, annars kemur einhver annar og stelur svæðinu ykkar.
Ef þið viljið stærra svæði þá getið þið keypt 1 claim block fyrir 4 Fé, að hámarki er hægt að eiga 16384 claim bocks sem gerir 128x128 verndað svæði.
Stöður - Ranks
Engar sérstakar stöður eru í boði eins og er, en fyrst þær eru svo eftirsóttar þá erum við erum að vinna í því að finna góða lausn til að úthluta þeim.
Tæknilega hliðin
Hýst á dedicated Intel i7 920, 16GB ram, 64GB SSD undir OS + world v5 + gagnagrunn, keyrandi á FreeBSD 9.3 á 100mbps FTTH tengingu.
Allar aðgerðir logged af Prism og full backup tekið af mappinu á external disk á klukkustundar fresti.